þriðjudagur, desember 23

....:::Einn listi í viðbót:::....

já ég ætla að hlýða Lilju og smella inn þeim myndum sem að mér fannst bestar á árinu 2008.... endilega kommentið ef að ykkur finnst ég vera að gleyma einhverri mynd

Bestu myndir ársins 2008 að mínu mati



5. Wall-E - það virtist vera voðalega misjafnt hvað fólki fannst um þessa mynd, var eiginlega bara enginn millivegur, annað hvort elskaði fólk hana eða bara hataði hana.... ég elskaði hana



4. Dark Knight - eflaust hefðu aðrir sett þessa mynd ofar á listann en mér bara fannst hún alls ekki vera besta myndin á árinu, þó svo að hún hafi verið friggin awesome og Heath fokkings geggjaður sem Jókerinn... svöl mynd



3. Quantum of Solace - djöfull var ég rosalega hrifinn af þessar maður! Rétt áður en að ég fór að sjá hana þá horfði ég á Casino Royale og hugsaði "það er ekki að ræða það að þeir nái manni aftur svona óvænt með kick ass Bond"... ég labbaði út úr bíósalnum japlandi á þessum orðum mínum þar sem að ég hafði ferlega rangt fyrir mér, hún var GEGGJUÐ!!... tékkið á henni ef að þið eruð ekki búin að því (og þá Casino Royale að sjálfsögðu líka ef að þið eigið hana eftir)



2. Taken - Ég gjörsamlega elska það þegar að maður byrjar að glápa á myndir og býst ekki við neinu (né hefur heyrt nokkurn skapaðan hlut um myndina) og svo bara PÁÁ!!! fær maður roundhouse kick í smettið Chuck Norris style frá myndinni út af því að hún rúlar svo brjálæðislega... Liam Neeson er Gler fokkings harður í þessari mynd sem svona "retired secret agent" en lendir í því að dóttir hans er rænt í Frakklandi og seld í vændi... upp frá því hefst brjálæðið, menn lamdir í spað, gjörsamlega steinmyrðir allt sem að í vegi hans ætlar að vera í leit hans að dóttir sinni... geðsjúk hefndar/hasar/sparkaírassgat mynd sem að enginn má sleppa því að sjá.... enginn!!



1. Rambo - Við Kiddi skelltum okkur á þessa fyrr á árinu eftir að við höfðum fengið X-977 miða á hana og við fórum þangað í mesta sakleysi okkar að búast við bara venjulegri Rambo mynd.... vá hvað við höfðum rangt fyrir okkur! Þessi mynd færði Rambo á annað level, bara vá sko... ég hef enþann dag í dag ekki hitt á einn einasta strák/karlmann sem að segir að þessi mynd sé léleg, gjörsamlega NÚLL engann!!! Enda hef ég sagt það að sá strákur sem að hefur séð þessa mynd og segir "nei hún var ekkert spes" hann verður löglega skráður á stundinni sem kvenmaður hjá Hagstofunni og þarf í komandi framtíð að pissa sitjandi og rúnka sér grenjandi... Blóðbaðið sem að einkennir þessa mynd er svo yfirþyrmandi að maður er farinn að fagna því líkt og á fótboltalandsleik þegar að hann skorar enn eitt stigið með því að myrða þessa gaura til dauða... að eilífu
klárlega besta mynd ársins að mínu mati, kom mest á óvart, skyldi mest eftir sig (ég bara brosi út af eyrum við tilhugsunina um atriðið þegar að hann hjó hausinn af gæjanum í bílnum PÁÁ motherfucker!!)... ég er búinn að sjá það að sumir gagnrýnendur eru búnir að setja þessa mynd á nokkrum stöðum inn sem VERSTU mynd ársins, en það er eflaust bara vegna þess að þeir eru bitrir yfir því að konan/móðir/eigandi þeirra leyfir þeim ekki að pissa standandi né borða kjöt...


..þá er listanum mínum lokið í bili, endilega kommentið um ykkar bestu myndir... Sælar!!!

|

sunnudagur, desember 21

....::Árið 2008::....


aldeilis flott hjá mér að blogga svona í janúar og svo næst í desember.. ég ætla nú ekki að gera þetta að vana mínum hugsa ég

en ég gerði semsagt áramótaheit fyrir árið 2009 Byrja að blogga aftur.... við skulum sjá hversu lengi það stendur (svona þar sem að það gekk svo vel síðast)

ég ætla að nota þessa bloggfærslu í að fá að skella niður einum lista... jú jú lista yfir....

5 Verstu myndir ársins 2008


ekki einu sinni hægt að finna poster á ensku fyrir þessa skelfilegu mynd

5. Surveillance - jeminn eini, engin önnur en dóttir meistara David Lynch ber ábyrgð á þessari augntóftanaugðun dauðans.... myndin er svo skelfilega skelfilega! mikið að reyna að vera "sækóþriller með góðu twisti" að manni verkjar í heilann hreinlega. Nánast ekkert í myndinni meikar sense, lögreglumenn sem að stunda það að hanga í felum fyrir utan þjóðveginn að skjóta á dekkin hjá fólki sem að keyrir framhjá (skapandi lífshættu hjá fólki með börn og hvað eina í bílnum en þeim er alveg sama því þeir eru bara vitlausir hillbilly steríótýpur sem að japla á hálmstrái og hlæja að þessu öllu saman) og aka svo á lögreglubílnum upp að þeim og fokka í þeim.... vitiði það að ég gæti bara eytt mörgum dögum í að rambla um þessa mynd en hún er bara hreinlega ekki þess virði.... sniðgangið hana bara



4. Prom Night - ég þori nánast að hengja mig upp á það að hvorki leikstjórinn né handritshöfundurinn hafi séð neina af eftirfarandi myndum : Scream, Scream 2, Scream 3 , I know what you did last summer, i STILL know what you did last summer, Urban Legend .... því ef að þeir hefðu séð einhverja af þessum myndum þá hefðu þeir áttað sig á því að þetta sem að þeir voru að pæla í að gera væri svo úthnjaskað og nauðgað að þeim hefði hreinlega svimað við tilhugsunina um að virkilega ráðast í framleiðslu á þessum vanskapnaði.... en því miður þá sáu þeir þessar myndir ekki og gerðu þessa mynd engu að síður. Sniðgangið þessa líka ef að þið viljið eiga sæmilegt sálarlíf



3. Collage - eflaust hafa nokkrir vikingbay notendur lent í því að ná í myndir út frá því að þeir sáu t.d 3 komment undir torrentinu fyrir bíómyndina sem að þeir voru að pæla í að ná í sem að hafa verið á þennan veginn "váá´´ þesi mind er alvegg gegjuð!!!?! endylega hjálpið mé´r að seeda" eða "klikuð mynd!! mæli með heni"... yfirleitt skoða ég imbd.com og læt til leiðast ef að hún fær sæmilegan stjörnufjölda þar... nema stundum þá gef ég myndum séns og tékka á þeim þrátt fyrir afar slæma gagnrýni, ég gerði akkúrat það með þessa og sjitt maður!!! annað eins rip off af annari kvikmynd hef ég aldrei séð... þeir reyna ekki einu sinni að fela það hversu óforskammaðir þeir séu í því að stela frá Superbad... ég get eiginlega varla lýst því hversu illa heppnuð þessi mynd er.... öfugt við hinar myndirnar á þessum lista þá ætla ég að mæla með henni fyrir fólk sem að hefur séð Superbad og að tékka á þessari og virkilega sjá það með eigin augum hversu mikið rip off þetta sé.... Do it



2. The Love Guru - þegar að þið lásuð þennan titil þá hreinlega veit ég að þið ranghvolfduð augunum og sögðuð "já fokk hún var glötuð".. að sjálfsögðu þá ef að þið sáuð þennan hrylling þar að segja... eins og mér finnst Mike Myers fyndinn (ég elskaði Austin Powers myndirnar, Waynes world, Shrek myndirnar og SNL sketzana hans) þá var hreinlega engu líkara en að við gerð þessara myndar hafi komið svona ill andstæða Mike Myers úr evil parallel universe (svona svipað og í south park þar sem að annar Cartman kom inn í söguna sem að var algjör andstæða hans s.s indæll,örlátur,hjálpsamur og söng lög um það hversu mikið hann elskaði vini sína) því þessi Mike Myers sem að var í þessari mynd var allt sem að Mike Myers er ekki venjulega, það er að segja : ófyndinn, hund fokkings leiðinlegur, misheppnaður og fyrirsjáanlegur. Eflaust ef að hann hefði farið réttu megin fram úr rúminu daginn sem að þessi mynd átti að vera gerð þá hefði hún verið skárri... því miður fyrir alla þá fór hann röngu megin fram úr.



1. Meet the spartans - ég var í mikilli sálarkreppu með þetta, hvor ætti heima í 1 sætinu, Love Guru eða Meet the spartans, þannig að ég gluggaði aðeins aftur í meet the spartans (ég er ekki enþá búinn að henda henni út af flakkaranum mínum einhverja hluta vegna) og jú jú, það er engin vafi.. þetta er versta mynd ársins (ef ekki bara hreinlega allra tíma) "húmorinn" í þessari mynd er alveg gjörsamlega af allra verstu gerð, það heimskulegur og fábjánalegur að maður fær mígreni við að pæla í því hvað gekk í gegnum höfuðið á mönnunum sem að héldu virkilega að nokkrum manni myndi finnast þetta fyndið... Subway auglýsingar inn í miðri mynd??? spurning með að prufa það



....fyndið? hélt ekki... en þessi óblessaða mynd (sénsinn að guð myndi leggja blessun sína yfir þetta) var gerð af sömu þrollunum og gerðu Disaster movie, Epic Movie og Date movie.. þannig að maður getur í rauninni sjálfum sér um kennt þar sem að það átti að liggja alveg í augum uppi hverju maður gekk að. Þessi mynd er að margra mati sú alversta á árinu og það er sko ekki af ástæðulausu, ef að þið trúið mér ekki Tékkið þá á henni.... ég mana þig.... samt ekki því hún er ferlega leiðinleg


.... þá er listanum mínum lokið í bili og þessari bloggfærslu en ég mun reyna að halda áfram af meiri krafti, verð að standa við áramótaheitið sjáið til

Sælar!!!

|

miðvikudagur, janúar 30

...:::Þreyttir?:::....




eins og ég hef nefnt áður þá er ég með útvarpið í eyranu meira eða minna allann daginn í vinnunni og getur margt þar bæði glatt mig og pirrað mig. Þessa dagana pirrar mig fátt meira en þessar helvítis auglýsingar með honum Simma

Hrikalega finnst mér þeir báðir þreytandi, hvers vegna gátu þeir ekki bara hætt á toppnum (eins og Kalli lú) eftir 70 mínútur þáttinn? Þá bögguðu þeir mann ekkert svo svaðalega en svo fóru þeir í idolið, auglýsingar og allann andskotann og fara fyrir vikið í taugarnar á öllum.

Þeir eru svoldið eins og yngri ófyndnari útgáfa af spaugstofunni (og ekki hlæ ég nú mikið af henni)

en nóg um það

hvað er málið með það að ráðast svona mikið þessa dagana á Dr.Phil? hann má ekki horfa út um gluggann þá er komið lið til að sverta hans gullna mannorð.

hann hélt framhjá konunni sinni, káfaði á 19 ára stelpu og var með eitthvað líkamsræktarstöðvarsvindl.... hver hefur ekki gert það? kommon

hann er bara meistari og ekki orð um það meir!!!

en nóg komið í bili.... sælar

|

mánudagur, janúar 28

...:::misskilningur:::....

og ég sem að hélt að KKK væri kynþáttahatarar..... ekki kátir krakkar í grafavoginum

|

....:::damn son:::....

ég, Úlfurinn og Sammi skelltum okkur í bíó í gær á myndina Cloverfield.
Myndin er öll tekin upp svona home camera style (eins og blair witch ruslið) og ég ætla strax að láta fólk vita af því að það er ekki sniðugt að sjá þessa mynd þunnur eða tussulegur á neinn hátt.

Ekki það að myndin sé léleg bara þessi fokkings myndataka verður því valdandi að það sé engu líkara en maður sé um borð í Herjólf að horfa á helvítis myndina.

Þegar að vel var liðið inn á myndina þá var mér öllum lokið og ég skellti mér á klósettið og ældi, ekki einu sinni heldur tvisvar (og það var ekki vegna þess að myndin var svo léleg) og að æla í bíó er eitthvað sem að maður nennir ekki.

Það er nógu slæmt að skíta í bíó en hvað þá að æla... ég er ekki frá því að fólkið í miðasölunni hafi heyrt í mér.
Ég kem út af klósettinu og þá standa fyrir utan tveir 13 ára rasshausar með tognaðan heila "sjitt gaur ertu bara alveg að drepast?".... ég sagði þeim að Cloverfield myndatakan væri ábyrg

en aftur að myndinni, hún er mjög flott og mikill stórmyndabragur yfir þessu öllu saman en þessi myndataka.... fokkings myndataka.... passið ykkur bara að vera ekki með king kong þynnku í gangi eða bara tussuleg og takið með ykkur sjóveikistöflur þá kannski muniði njóta hennar betur. Hún er alveg ágæt

þetta er fínt í bili... sælar!

p.s ég er að skíta upp á bak með það að nenna þessu viðtali þannig að það kemur bara þegar að það kemur, pís át


ég reyndi að ljúga því að gaur í vinnunni minni að myndin væri um þjófa sem að hefði stolið hausnum af frelsisstyttunni.... hann keypti það ekki

|

mánudagur, janúar 21

....::: "ef það verður þá eitthvað brúðkaup!!!!" :::.....

venjulegast fær maður lög á heilann.... eftir daginn í dag þá var rauninn önnur, ég fékk auglýsingu fyrir nýja íslenska bíómynd (Brúðguminn) á heilann.
Ég náði engri stöð nema bylgjunni í útvarpinu í allann dag og ég er ekki frá því að ég hafi heyrt þessa auglýsingu svona 30 sinnum (alveg án alls gríns)...ég efast um að ég sjái þessa mynd

en mikið er búið að ræða um hvar eigi að grafa Bobby Fischer og stakk einhver skáklúði upp á Þingvöllum.... er gæjinn bara fokheldur?
það er ekki að ræða það að við munum grafa einhvern útlenskan rasista og geðsjúkling á virtasta grafreit landsins bara af því að hann var svo rosalega góður í skák... hefði þá ekki verið nær lagi að grafa t.d Jón Pál þar?

svo var eitt enn sem að hefur böggað mig svolið varðandi fréttablaðið, ef að maður sér eitthvað áhugavert á forsíðunni og það segir t.d "sjá bls 34" þá eru svona allavega 3-4 bls 34 í helvítis blaðinu. Búið að troða einhverjum 4 blöðum með inn í mitt blaðið þannig að maður er ár og aldir að finna bls 34.... óþolandi

en Danni er komin frá Danmörku þannig að ég smelli á hann spurningum í vikunni og smelli inn flöskudagsviðtali... segjum það

Sælar

|

miðvikudagur, janúar 16

...:::Í fréttum var þetta helst:::....

fréttir undanfarna daga hafa verið heldur skrautlegar margar, ég er búin að pæla dáldið í nokkrum

eins og t.d

Unglingsstúlka fékk steypustyrktarjárn í lærið - einhverjar gjörsamlega gufutómar skonsur binda slöngu aftan á bílinn hjá sér og ein stelpa sest á slönguna svo draga þær hana áfram á ógnarhraða og hún slasast.... hækka bílprófsaldurinn upp í 20 ár?

Brá þegar dópaðir menn réðust inn í íbúð í Bökkunum - ég lenti í smá spjalli um daginn og þá voru einhverjir sem að héldu því fram að Breiðholtið væri sko alls ekkert ghettó lengur.... hvað gerist örfáum dögum eftir þessa staðhæfingu? jú jú mæta ekki bara tveir út úr geggjaðir spítthausar í bakkana með axir og ganga berserksgang.... eins og Írabakkinn er nú rólegur og stabíll

Brjálað teiti í Ástralíu - einhver 16 ára patti í ástralíu býður nokkrum í partý í heimahúsi... nánar tiltekið 500 manns
skiljanlega var hringt í lögregluna og kvartað yfir hávaða og þegar að hún mætti á staðinn þá varð bara fjandinn laus og gert aðsúg að löggunni og þurfti hvorki meira né minna en 30 lögreglumenn, lögregluhundasveit og þyrlur til að stoppa þetta partý.... þeir kunna að djamma í ástralíu það er ljóst

Lifandi auglýsingar - er það ekki fulllangt gengið þegar að maður er kannski að taka strætó í vinnuna og ekki beint vaknaður enþá að auglýsingageðveikin komi þá og vekji mann með því að reyna að troða upp á manni símareikning.... þessar auglýsingaherferðir eru greinilega að fara úr böndunum


...já það getur verið gaman að fréttunum krakkar mínir


þessi mynd kemur efninu þannig lagað ekkert við... fannst hann bara svo flottur eitthvað

|

sunnudagur, janúar 13

...:::Versta mynd ársins 2007 ? :::.....

það er sko óhætt að segja að það hafi komið út alveg aragrúi af gjörsamlega handónýtum og ömulegum myndum þetta árið og þess vegna ætla ég að hafa smá lista yfir nokkrar af verstu myndum ársins 2007

ég spurði nokkra vel valda einstaklinga á msn inu hjá mér og fékk nokkur nöfn á myndum sem að þeim fannst vera algjör sóun á lífi og tíma

inn á þennan lista komust eftirfarandi myndir

Norbit

Epic movie

Lady in the water

High school musical 2

Ghost rider

Good luck Chuck

Eragon

Hitman

Are We Done Yet?

....já reyndar finnst mér það merkilegt að fólk hafi í alvöru talað gefið sér tíma í að glápa á sumar af þessum myndum

sú mynd sem að gjörsamlega rústaði þessari keppni með einhverjum 15 atkvæðum (sú sem að var í öðru sæti var með 4) var myndin EPIC MOVIE

sú mynd virðist hafa tekið lélegu myndar markaðinn ,gjörsamlega tröllriðið honum og algjörlega gengið af fólki dauðu

en hjá mér persónulega þá fannst mér versta mynd ársins algjörlega by far hafa verið myndin Mr.Woodcock. Úlvurinn bjallaði í mig einn daginn og sagðist hafa unnið miða á þessa mynd á X-inu og hann vildi bjóða mér með sér... allt í lagi með það

við skellum okkur á myndina og það vildi ekki betur en svo að við fórum út af henni fyrir hlé.... alveg rosa rosa roossaaalega vond mynd

en semsagt Epic movie var versta mynd ársins samkvæmt þessari litlu könnun minni, segjum þetta gott í bili

Sælar!!

p.s ef að ykkur finnst ég hafa gleymt að minnast á einhverjar glataðar myndir þá bara að skella þeim í kommentið

|

fimmtudagur, janúar 10

....:::áramótaheit::::......
jú jú ég ákvað það að á nýju ári skyldi ég byrja að blogga aftur.... ekkert bloggað síðan í mars og fengið svona að meðaltali um 2 heimsóknir á mánuði síðan þá og administratorinn hjá blogger sendi mér meil um að síðan myndi hrynja ef að það kæmi svona grimmur fjöldi á síðuna á hverjum degi, serverinn bara væri alveg að hrynja undan álaginu
.
annars er svo sem fátt að frétta... þess vegna mun ég eflaust blogga bara eins og áður fyrr um bara einhverja steik
.
reyndar ætla ég að reyna að minnka það að vera svona rosalega bitur, búin að vera að fletta í gegnum gömul blogg hjá mér og rosalega var maður alltaf reiður eitthvað?
.
ég stefni á flöskudagsviðtal á föstdaginn eftir viku og leita að fínum kandídat í það (ef að þið hafið hugmyndir eða uppástungur endilega smellið þeim í commentin)
.
en svona rétt undir lokin þá má ég til með að deila þessari mynd með ykkur af dömu sem að krefst þess að fá virðingu og það strax, enda eins og myndin gefur til kynna þá er ekki annað hægt en að fyllast af lotningu í hennar garð
.
en fylgist spennt með því að ég ætla að reyna að koma aftur af krafti (hef sagt það áður en núna hef ég meiri tíma held ég)
.
sælar!!!

|

mánudagur, mars 12

....:::KARLAKVÖLD!!!:::.....

jú jú þið lásuð rétt KARLAKVÖLD Á KRINGLUKRÁNNI!!!

uppákomurnar verða meðal annars kosning á kynþokkafyllstu konu landsins, kynning á nýrri samloku frá Júmbó og svo verður líka bingó þar sem að meðal verðlauna má finna stórglæsilega ferð á Snow Gathering festivalið sem að verður frekar haldið í Færeyjum þar sem að fólkið er ekki jafn forpokað og á stöðugum nornaveiðum og hér á klakanum

og bara svo að það sé á hreinu þá mega konur ALLS EKKI KOMA (nema þá í efnislitlum búningi og helst vel vaxnar)

...en svona bara til að forðast allan misskilning þá er ég bara svona létt að vekja athygli á Konukvöldi léttbylgjunar sem að verður haldið bráðlega...

ætli að Katrín Anna Guðmundsdóttir myndi byrja að hrína hástöfum ef að þessi auglýsing fyrir karlakvöldið væri sönn?

|